Jájá, núna hef ég ekki bloggað í alveg sautján daga. Ekki hafa uppþotinn vegna þess orðið mikil þannig ég býst við að þetta sé nú í lagi.
Ég ætti nú að hafa nóg að blogga um þar sem að langur tími hefur liðið síðan ég bloggaði.. en ég ætla samt nú bara að fara hratt yfir þetta.
-(sem talað var um síðast) Sykur og Agent Fresco og ... fleiri tónleikar voru alveg mjög góðir, standa fyrir sínu.
-Svo var einhvað rosalegt að gerast heima hjá Haflilla síðustu helgi.. var að vinna þá helgi, úff hvað ég var þreytt, woop woop.
-Þessa helgi fór ég svo á Tuskuna hjá 10-11, mætti of seint, og bjórinn var allur búinn :') það endaði samt bara mjög sæmilega. Fékk mjög góðan þynkumat morguninn eftir og blablabla!
-Svo síðastliðna viku hafa Gettu Betur og Morfís keppnir verið haldnar... FB því miður komst áfram í hvorugu..
"Hvað er þá fyrir stafni?" Spyrjið þið væntanlega..
-Nú árshátíðin er eftir 10 daga! Ætla ég ekki sjálf í mat en mæli ég eindregið með því, en ballið verður svakalegt með Skímó og Blóðflokkinum
-Sæludagar (þemadagar FB) Fylgja svo náttúrulega Árshátíðinni með gleði.
-24 dagar í London!! JEE það verður rosaaaaalegt djamm, alveg rosalegt
-Skólin heldur sínu striki væntanlega.. 2 mánuðir búnir!! þetta líður alltaf alltof hratt.
Þá ætla ég að skilja við ykkur að sinni, og vonandi skrifa ég einhvað í þessa 'skruddu' sem fyrst. Því meiri viðbrögð sem ég fæ, því meiri líkur á framtíðar skriftum ;D
Síðastliðin Fimmtudag átti að vera svokallað Nyjársball FB, en það var hætt við það, þá dó djammið.
EN núna í kvöld er sagan önnur! Sódóma mun í halda svakalega tónleika í alla nótt. Úrvalsböndin SYKUR og BLOODGROUP og BERNDSEN og AGENT FRESCO munu stíga á svið (ásamt einhverjum DJ Arnór sem ég veit ekkert um..) Verð ég svæðinnu að dansa af mér lappirnart, og mér er búið að hlakka til alla vikunna, þetta verður alveg rosalegt og ég mun skemmta mér svo vel, og vá!! Ég hef verið að bíða eftir tónleikum alltof lengi. Hef ætlað í sykur sjokk frekar lengi, en mér var ekki hleyft á útgáfu tónleikana, vegna 11 mánaða sem vantaði uppá lífið mitt, svekk.
Öhmm bara til að prómóta böndinn þá ætla ég að senda ykkur frá-bærar slóðir á frábær eða frábær lög. Sykur - Geðveikt dans electro band Berndsen - Hress hresst band Bloodgroup - Super fine electric tónlist Agent Fresco - Mjög ávanabindandi rokk
Annars get ég ekki beðið, er að tala við Unu mína sem hlakkar ekki til að hitta mig, heldur horfa á vampire diaries... afhverju var ég að eyða 40 þúsund í flug.
Svo í gær var skinka að segja að ég leit út eins og ég hefði aldrei riðið.. So proof I'm a virgin! Allt þetta gerðist í gegnum facebook..
Annað í fréttum, Una heldur að vetraólimpíuleikarnir eru í Ástralíu.
Já, verið sæl, sjáumst í kvöld, vonandi!! Rakel-Mega-Djammz
Ég er uppí rúmi í tölvunni, búin að vera veik og löt alla helgina. Og ég nenni ekki að sofa, en ég þarf að vakna bráðum.. Þannig ég er að skrifa blogg. Ég get reyndar montað mig af því að ég prjónaði eina legghlíf yfir helgina, með mínu eigin sjálf hannaða munstri.
Svo var þessi helgi bara frekar kúl, söngvakeppni sjónvarpsins, er ekkert rosalega sátt við nein lögin í undankeppninni. Það vantaði; Hart Rokk eða Electro Techno. Eða eins og ég kalla; Stuð. En jújú, tölum Frönsku, þá fáum við allavega einhver stig.
Í dag er skemmtilegt að segja frá því, sögðu alveg undarlega margir "Já nei".. Spurninginn var einföld : "Má bjóða þér afritið", en svarið var oft "já nei takk" eða "jaá nei nei" .... og margar fleiri útfærslur, þó ég veit að þið eruð æst í þær ætla ég ekki að gefa það eftir ykkur.
Hóp-Mótmæli niðrí FB á morgun fyrir þá sem vita ekki af því. Ekki eins og það er heill her að lesa þessi blogg. En ef þú gerir það, og það er jafnvel í laumi því þú elskar að snuðra um líf annarra. En hefur ekkert um það að segja; Endilega skildu eftir skilaboð, þó það sé nú bara "HÆ" eða "LOL". Það er alltaf ágætt að vita að einhver les þetta. Samt betra að nafn-merkja. Ég lofa að verða ekki hrædd, ég stunda þetta smá sjálf.
Nei ég nenni venjulega ekki að lesa samt blogg hjá öðrum, því að þau eru afar innihaldslaus. Rétt eins og þetta.
Já og ég fer úr einu yfir í annað; HÓPMÓTMÆLI = SKRÓP. FBingar ætla að mæta í skólan, tímalega væntanlega, niður í matsal og hanga þar. Og ekki láta sjá sig í tíma, heldur hanga eins og einhverjar þvörur. Þetta allt er gert vegna þess að skóla-stýra og skólastjórn hafa ákveðið að styðja okkur ekki í því að halda árshátíð útá landi.
[TUÐ] Mér finnst reyndar soldið fyndið hvað skólastýran er búin að vera "dugleg" að reyna að breyta hlutum hérna. Mér þætti ágætt til dæmis að í staðinn að vera hrædd um að sjá hvernig árshátíðin fer fram. Og banna hana, fyrsta árið. Hvað með að leyfa hana fyrsta árið, til að sjá hvernig þetta fer nú, undir þínum klóm. Eða mjúku höndum eða hvað sem að stjórnvöld nota. Ef ég kæmi ný inn í stofnun væri ég auðvitað til í að betrumbæta margt, en ég tæki mér smá tíma til að taka eftir umhverfinu, hvernig hlutir ganga. Og hvað má gera betur. [/TUÐ] Sukk er partur af uppreisnar anda unglingsins. Þótt að þau "fullorðnu" eru með eða á móti því. Reyndar aðalega ef að foreldrar eru á móti því. Og ég er viss um að þau vita alveg sjálf hvernig þetta er. Frekar að hafa umræðuna opna og gefa krökkunum ráð, þar sem að foreldrar hafa ekki mikið um að segja hvort afkvæmin gera þetta eða ekki. Væri ekki miklu betra að vita þá allavega að því og sjá til þess að krakkarnir séu ekki að deyja ælandi útá götu!!
HEY ég sá krakka hóp af 93 módelum á götunni í gær, að deyja og æla. Svo kom lögreglubíll og allt. Það var alveg rosalegt.. Það leit nokkvurnvegin svona út, nema flöskurnar voru oppnar..
Nú er fyrsta bloggið komið og um að gera að halda því áfram!!
Í dag var ég alveg ro-o-o-salega dugleg, í skóla-leikfimi og fórum við í sund. Átti maður að synda 500 metra en skellti ég mér á 1000 metra og eimbað. Svo skutlaðist ég heim og fór í ræktinna, og hjólaði og skíðaði og pumpaði byssurnar! Geisilega rosalegt eiginlega.
Svo á morgun verður glæsilegt stelpukvöld með elskunum mínum; Vídjó-Myndir og Pizza og Popp og Drykkir og Teppi og Gleði og Ghibli Studios!
Svo vil ég endilega mæla með að ýta á tengla til að fatta margt eða fá smá einka-húmor. Jafnvel þótt þú vitir alveg hvað þetta er gæti viðhengið sagt einhvað allt annað ;D !
Takk fyrir og eigið góðan fimmtudag til mánudag.. kær kveðja RGB
Hér kemur mín fyrsta færsla, hef átt önnur blogg, sem vill svo neyðarlega til að ég get ekki eytt þeim. Ég held ég fer ekki að deila því hér, aðeins of vandræðarlegt.
Í dag mun ég, þótt sárt er að heyra; mun ég hætta að reykja. Allavega í magni, ég mun alveg öruglega fá eina á djamminu en ekkert meira en það. Ég mun sakna þín Lucky S! (fyndið því Lucky Strike / Lucky Star.. anime nördinn í mér). Og svo vill líka svo skemtilega til að í Cowboy Bebop sést hann reykja LS í síðasta þætti (heimild).
Ansi nothæft að hafa texta sem linka, ef einhver veit ekkert hvaða sprell er í gangi!
Djamm um helgina, fór á Grand Rokk, og það var alveg mergjað fjör og stuð, eins og öll djömm, jájá.
Er að fara að klára fyrsta áfangan minn á föstudaginn, 3 einingar, SCORE! Myndlistar-dæmi, aðalega bara að mála. Svo er ég til hliðar alltaf að vinna í lokaverkefninu mín.. Verður rosalegt!
Svo er ég að fara til LONDON að hitta mína ofur fögru og fersku Unu. Hlakkar ekkert smá til, með mér verða líka Eyrún og Bobo.. Mikið party og mikið djamm, like totes ma-goats.
Annars byrjar vinnan eftir 25 mínutur þannig ég er farinn, verið sæl að sinni